Kvikmyndir

A Distant Thunder

Leikstjórn: Donald W. Thompson
Handrit: Russell S. Doughten Jr. og Donald W. Thompson
Leikarar: Patty Dunning, Sally Johnson, Sandy Christen, Thom Rachford, Maryann Rachford
Upprunaland: Bandaríkin
Ár: 1978
Lengd: 77mín.
Hlutföll: us.imdb.com/Details?0075945#writers
Einkunn: 1

Ágrip af söguþræði:
Þetta er áframhald af A Thief in the Night. Patty Myers og vinir hennar hafa verið gripin af útsendurum dýrsins. Allir þeir sem hafna ekki Guði eru leiddir í gálgann og teknir af lífi. Á meðan hópurinn bíður að röðin komi að þeim rifjar Patty upp það sem á daga hennar hefur drifið. Eins og í fyrri myndinni er helling af prédikunum í myndinni og hræðsluáróðurinn gegnum gangandi. Burthrifningin hefur átt sér stað, þ.e. allir þeir sem eru sannkristnir (þ.e. bókstafstrúarmenn)voru hrifnir burt upp til himins. Þeir sem ekki vilja fá merki dýrsins á enni sér eða hægri hendi verða að þrauka í sjö hryllileg ár en á þeim tíma nær dýrið (Satan) völdum. Þau sem neita að taka við merkinu eru hundelt og tekin af lífi ef þau hafna ekki Guði. Næstu myndir í fjórleiknum heita The Image of the Beast og The Prodigal Planet.

Greining á trúar- og siðferðisstefjum:
Guðfræðin er sú sama og í fyrstu myndinni. Grunnur myndanna í þessum fjórleik er Opinberunarbókin en hún er túlkuð bókstaflega. Á þrengingartímabilinu hefur Guð tekið anda sinn frá mannkyninu og þeir sem ekki tóku á móti Kristi veða að kljást við djöfulinn upp á eigin spýtur eða að gangast honum á hönd. Eins og vanalega í kristnum heimsslitamyndum sem bókstafstrúarmenn standa að rís andkristur upp innan Sameinuðu þjóðanna og byrjar á því að koma á friði á milli Ísrael og Palestínu. þau sem neita hins vegar að láta merkja sig á enni eða hægri hönd fá ekki að kaupa sér mat og verða að fara huldu höfði. Samkvæmt þessari mynd eru aðeins þau sem hafa tekið við merki dýrsins útilokuð frá Guð. Í þriðju mynd breytist þetta en þá eru öll þau sem höfðu heyrt um frelsunarboðskap krists fyrir burthrifninguna en ekki tekið við Kristi útskúfuð af Guði, jafnvel þótt þau hafi tekið trú eftir burthrifninguna. Markmið myndanna er því tvíþætt. Annars vegar að boða hið „rétta“ fagnaðarerindi um Jesú Krist (nýguðfræðingar eru t.d. á villigötum) og hins vegar að hræða fólk inn í guðsríkið. Hræðsluáróðurinn stigmagnast með hverri mynd en boðskapurinn er sá að heimsslitin gætu hafist í dag og því er vissarra að hafa valið rétt.

Beinar tilvísanir í texta trúarrits: Biblían, Ml 4:5-6, Daníel, Mt 18:6, Mt 24, Mk 9:42, Jh 3:3, Jh 3:15-16, Jh 3:36, Jh 5 :24, Jh 6:24, Jh 6:47, Jh 6:54, Jh Jh 11:26, Rm 2:5, Rm 6:23, 1Þ 4:16-17, 1Þ 5:2, 2Þ 2:11-12, 1Jh 5:11, Opb 1-22, Opb 6, Opb 7:4, Opb 13:11 Opb 13:16-18
Persónur úr trúarritum: Andkristur, Elía, Heilagur andi, Jesús Kristur, Móse, Páll postuli, Satan, Þrenningin
Guðfræðistef: burthrifningin, erfiðleikar, fyrirgefning Guðs, heimsslit, helvíti, nýguðfræði, þjáning
Siðfræðistef: fégræðgi, hroki, sjálfselska, ofbeldi,
Trúarbrögð: kristni, bókstafstrú, húmanismi
Trúarlegir og goðsögulegir staðir: himnaríki, Jerúsalem, kirkja
Trúarleg tákn: kross
Trúarlegt atferli og siðir: bæn, messa, prédikun, sálmasöngur