Gaye Ortiz um guðfræði og kvikmyndir

Gaye Ortiz

Gaye Ortiz er annar höfunda nýlegrar bókar um guðfræði og kvikmyndir, Theology and Film. Challenging the Sacred/Secular Divide. Hún sótti Ísland heim í lok maí og þar gafst tækifæri til að eiga við hana stutt spjall um þessa bók og fræðasviðið. Hægt er að hlusta á spjallið á enska Dec-vefnum.

Viðtal við Niels Arden Oplev

Drömmen - strákurinn

Niels Arden Oplev er handritshöfundur og leikstjóri dönsku kvikmyndarinnar Drømmen. Hann var gestur Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík 2006. Undirritaður fékk tækifæri til að ræða við hann um myndina og trúarstefin og viðtökurnar. Viðtalið er á ensku og hægt er að hlusta á það á enska Deus ex cinema vefnum.

Futurama 4:7 Crimes of the Hot

Futurama - Season 4 - Kápumynd

Hnattræn hlýnun ógnar jörðinni og er ráðstefna því haldin í Kyoto þar sem fjallað er um vandamálið undir forystu höfuðs Als Gores. Í Futurama þættinum Crimes of the Hot er vísað til flóðsins í 1. Mósebók og Arkarinnar hans Nóa.

Adams æbler sýnd í sjónvarpinu

Adams æbler, kápumynd

Danska kvikmyndin Adams æbler er á dagskrá Ríkissjónvarpsins kl. 21:05 í kvöld. Myndin segir nýnasistanum Adam sem lýkur fangelsisvist sinni með samfélagsþjónustu í litlum söfnuði. Þar hittir hann fyrir prestinn Ivan sem hefur óvenju jákvætt og sérstakt viðhorf til lífsins. Þetta er kolsvört gamanmynd um alvarleg efni sem geymir mikinn fjölda trúarstefja.

Futurama 4:5 A Taste of Freedom

Futurama - Season 4 - Kápumynd

Futurama þættirnir koma úr smiðju Matts Groenings sem er maðurinn á bak við Simpsons þættina vinsælu. Þættirnir gerast í framtíðinni og greina frá ævintýrum starfsmanna flutningsfyrirtækisins Planet Express. Þeir geyma áhugaverða gagnrýni á samfélag. Í þættinum A Taste of Freedom er fengist við spurningar um frelsi einstaklingsins, þar með tjáningarfrelsið.

Táknmál kristinnar trúar í Seltjarnarneskirkju

Amadeus - myndrammi - Salieri

Nú stendur yfir kirkjulistahátíð í Seltjarnarneskirkju. Fimmtudaginn 3. apríl verður dagskrá um trúarstef í kvikmyndum í kirkjunni sem Deus ex cinema kemur að. Flutt verða tvö erindi um Biblíuna í bíómyndum og trúarlega og táknræna merkingu lita.

Hrollvekjusinfónía og Nosferatu í Salnum

Veggspjald fyrir Nosferatu

Hrollvekjusinfónía - tónlist og kvikmyndir helguð ódauðum í Salnum, Kópavogi klukkan 14.00. Frægasta vampírumynd allra tíma, Nosferatu, verður sýnd við lifandi undirleik Geirs Draugsvoll og Mattias Rodrick. Tónlistin við myndina er eftir danska tónskáldið Helle Solberg sem verður viðstödd á kvikmyndatónleikunum og talar um tónsmíðar sínar á pallborðinu á undan þar sem fjallað verður um vampírur og kvikmyndir í sögu og samtíð.

Örviðtal um Listina að gráta í kór

Listin að gráta í kór - Undirbúningur fyrir ballið

„Þetta er kröftug og áhugaverð mynd, sem hryggir og hræðir og gleður í senn, segir Gunnar Matthíasson í örviðtali um verðlaunamyndina Listin að gráta í trú hér á vefnum.

Listin að gráta í kór hlýtur Kvikmyndaverðlaun kirkjunnar

Listin að gráta í kór

Kvikmyndin Listin að gráta í kór eftir leikstjórann Peter Schønau Fog hlaut Kvikmyndaverðlaun Þjóðkirkjunnar sem voru veitt í annað sinn á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík 2007. Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, veitti verðlaunin í lokahófi hátíðarinnar. Leikstjórinn, sem var staddur hér á landi vegna hátíðarinnar, tók við verðlaununum.

Örviðtal um Vratné Lahve

Vratné Lahve - Tveir í glugga

„Þetta er mynd sem flestir ættu að sjá,“ segir Bernharður Guðmundsson í örviðtali um tékknesku kvikmyndina Vratné Lahve sem er sýnd á kvikmyndahátíðinni. Myndin fjallar um kennara sem fer á eftirlaun og fer að vinna ýmis störf þar sem mikið er um persónuleg tengsl.

Syndicate content