Kvikmyndaverðlaun kirkjunnar verða veitt öðru sinni á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík, sem hefst í dag. Verðlaunin verða veitt framúrskarandi kvikmyndir sem vekur með áhorfendum mikilvægar tilvistarspurningar. Verðlaunin voru veitt í fyrsta skipti í fyrra og komu þá í hlut þýsku kvikmyndarinnar Vier Minuten.
Miðasala á Alþjóðlega kvikmyndahátíð í Reykjavík hófst í dag, en hátíðin sjálf hefst eftir viku. Alls verða sýndar 87 kvikmyndir frá 30 löndum. Fimmtán kvikmyndir keppa um þrenn verðlaun á hátíðinni: Uppgötvun ársins sem eru aðalverðlaun hátíðarinnar, Fipresci gagnrýnendaverðlaunin og kvikmyndaverðlaun kirkjunnar sem verða veitt öðru sinni á hátíðinni í ár.
Deus ex cinema er félag áhugamanna um trúarstef í kvikmyndum sem stofnað var 4. júlí 2000 og er starfrækt af allmörgum fræðimönnum á sviði guðfræði, kvikmyndafræði og listfræði. Sænska kvikmyndin Såsom i en spegel (Ingmar Bergman: 1961) er 500. leikna kvikmyndin sem frumsýnd hefur verið á vegum félagsins en af því tilefni er guðfræðinemum og öðrum áhugamönnum um trúarstef í kvikmyndum boðið að mæta á sýninguna og taka þátt í umræðum.
Finnski leikstjórinn Aki Kaurismäki verður heiðursgestur Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík árið 2007. Kvikmyndin Maður án fortíðar er ein af hans þekktari myndum, en hún greinir frá minnislausum manni sem reynir að fóta sig í samfélaginu, nafnlaus og minnislaus. Skúli Sigurður Ólafsson fjallar um trúar- og siðferðisstef í þessari mynd hér á vefnum.
Í gær frumsýndi Síminn nýja auglýsingu fyrir þriðju kynslóðar farsíma. Auglýsingin sýnir Jesús og Júdas ræðast við í myndsíma. Hvað sviðsmynd og framsetningu varðar kallast hún á við nýlegar Jesúmyndir eins og The Passion of the Christ og The Gospel of John, tónninn í henni er gamansamur sem minnir á The Life of Brian og nokkur af lokaskotunum í auglýsingunni eru endurgerð á kvöldmáltíðarfresku Leonardo da Vinci.
Kvikmyndadagskrá Deus ex cinema á Kirkjulistahátíð hélt áfram í kvöld þegar verðlaunamyndin Vier Minuten var sýnd í Tjarnarbíói. Á undan sýningunni fluttu Oddný Sen og Árni Svanur Daníelsson stuttar innlýsingar og að sýningu lokinni ræddu bíógestir um upplifun sína af myndinni. Innlýsingarnar má lesa hér á vefnum.
Fyrsta hluta Deus ex Cinema á Kirkjulistahátíð í Hallgrímskirkju er nú nýlokið en þar héldu þrír liðsmenn félagsins erindi um margvíslegar birtingarmyndir Guðs í kvikmyndum, jafnt dramatískum listrænum myndum sem vel þekktum gamanmyndum frá síðari árum.
Gunnar J. Gunnarsson, meðlimur í Deus ex cinema, segir frá kvikmyndinni Vier Minuten, í stuttu viðtali hér á vefnum. Vier Minuten hlaut kvikmyndaverðlaun kirkjunnar haustið 2006 og hún verður sýnd á Kirkjulistahátíð í ágúst.
Það eru fáar sögur sem mér er jafn illa við og Nýju fötin keisarans. Ástæðan er sú að ég tel að sagan hafi leitt meira vont af sér en gott. Jú vissulega er gott að benda fólki á að fylgja eigin sannfæringu og láta ekki stjórnast af „viðhorfum“ annarra. En vandinn er sá að áherslan er ekki lögð á þann þátt sögunnar heldur á „klæðskerana“ sem göbbuðu alla.
Simpsons fjölskyldan hefur verið tíður gestur á heimilum landsmanna frá 1989 og nú er hún komin í kvikmyndahús. Kvikmyndin um Simpsons fjölskylduna hefur notið mikilla vinsælda og fengið góða dóma. Hér er Simpsons fjölskyldan sett í hlutverk þrjóta og frelsara bæjarins Springfield, sem er orðinn að mengaðasta smábæ Bandaríkjanna. Umhverfismál og heimsslit og opinberun eru meðal þess sem Árni Svanur Daníelsson ræðir í umfjöllun um myndina hér á vefnum.