Deus ex cinema tekur þátt í dagskrá Kirkjulistahátíðar eins og undanfarin ár. Að þessu sinni er óvenju fjölbreytt dagskrá, með kvikmyndasýningum og umræðum.
Nú er unnið að uppsetningu á nýjum vef Deus ex cinema. Nýtt efni mun héðan í frá birtast á þeim vef. Vefinn er að finna á www.dec.is/is. Samhliða er unnið að uppsetningu á enskum vef.
Lengi vel var ég haldinn þeirri nokkuð útbreiddu skoðun að myndir Ingmar Bergmans (1918-2007), sem nú er minnst um allan heim, hafi fyrst og fremst verið langdregnar og leiðinlegar. Það var ekki fyrr en ég fór að gefa gaum að notkun trúarlegs efnis í kvikmyndum sem Bergman kviknaði til lífs hjá mér.
Tveir meðlimir í Deus ex cinema flytja erindi á ráðstefnu Society of Biblical Literature sem verður haldin í Vínarborg í júlí. Þeir Þorkell Ágúst Óttarsson og Árni Svanur Daníelsson taka þátt í málstofu um aðferðafræði og framtíðarsýn í Biblíufræðum þar sem Biblían í kvikmyndum og dægurmenningu verður í brennidepli. Á málstofunni munu þeir kynna rannsóknir Deus ex cinema og ræða um þá aðferðafræði sem beitt er á vef hópsins og um Edensstef í kvikmyndum.
Fjalakötturinn sýnir þrjár myndir byggðar á sögum Astrid Lindgren nú um helgina, auk þess sem síðustu sýningar á myndum franska kvikmyndagerðarmannsins Raymond Depardon fara fram. Þá verður boðið upp á úrval franskra stuttmynda.
Nánar á vef Fjalakattarins ...
Fjórða alþjóðlega samkirkjulega kvikmyndaráðstefnan verður haldin í Edinborg 19.-22. júlí. Að þesu sinni verður umfjöllunarefni ráðstefnunnar friðarstarf og kvikmyndir. Yfirskrift hennar er: Peacemaking and the World of Film. From Conflict to Resolution.
Nánar má lesa um ráðstefnuna á vef hennar.
Íslenska kvikmynda- og sjónvarpsakademían stendur fyrir hádegisfundum á föstudögum þar sem fjallað er um kvikmyndir og sjónvarp. Fundirnir eru haldnir hálfsmánaðarlega frá og með 13. apríl. Á fyrsta fundinum fjallaði Baltasar Kormákur, leikstjóri, um kvikmyndaaðlaganir og mynd sína Mýrina.
Nánar má lesa um fundina í Landi og sonum.
Franska heimildarmyndin Brotinn spegill (Muslims and Christians) verður sýnd í
tengslum við franskt vor á Íslandi hjá Fjalakettinum. Sýningin fer fram 2. apríl
klukkan 21:00. Leikstjórinn Jacques Debs verður viðstaddur sýninguna og svarar spurningum áhorfenda. Jacques Debs er uppalinn í Líbanon og lærði kvikmyndagerð í Moskvu.
Um er að ræða vegamynd þar sem ferðast er gegnum átakasvæði á leiðinni frá Sarajevo til Jerúsalem. Líf múslima í Evrópu og kristinna í Evrópu er sett undir smásjána.
Tónlistin skiptir miklu máli í myndum Debs, og er jafnvel samin áður en hann hefur tökur. Debs var hér á landi fyrir tveimur árum síðan og komst þá í kynni við Sverri Guðjónsson söngvara sem flutti tónverkið "Liturgy" eftir Ritu Ghosn á armensku.
Romeo, Julia a tma er tékknesk helfararmynd frá 1960. Myndin greinir frá hinum unga Pavel sem felur gyðingastúlkuna Hanka á háalofti í fjölbýlishúsi í Prag. Samband þeirra þróast smám saman í ástarsamband og er Pavel eini tengiliður Hönku við umheiminn.
Gunnlaugur A. Jónsson mun fjalla um efnið Paradísarmissir í nokkrum helfararkvikmyndum í málstofunni Trú, menning og samfélag á Hugvísindaþingi þann 9. mars næstkomandi. Málstofan verður haldin í stofu 207 í aðalbyggingu Háskóla Íslands og stendur frá 15-16:30. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.