Jesús frá Montreal er fjórða Jesúmyndin af sex sem sýndar eru Neskirkju á sunnudögum kl. 15.00 undir yfirskriftinni Jesúbíó. Myndin er bæði hefðbundin Jesú-mynd og mynd um 'kristsgerving,' þar sem mörkin á milli persónu Jesú og leikarans, sem leikur hann, verða stöðugt ógreinilegri.
Spjótum er beint að yfirborðsmennsku, mannfyrirlitningu og græðgi annars vegar og hins vegar að hræsni trúarleiðtoga og valdníðslu kirkjustofnana. Ásgrímur Sverrisson og Sigurður Árni Þórðarson flytja stutt inngangserindi um myndina fyrir sýningu.
Kvikmyndir eru um margt ágengari en önnur túlkunarform og sitt sýnist hverjum þegar kemur að túlkun á frásögum guðspjallanna. Kannski er ekki tilviljun að oft þykir fólki „að bókin hafi verið betri“ þegar metið er hve vel hafi tekist til við að færa frásögur guðspjallanna upp á hvíta tjaldið.
Lesa pistilinn á trú.is ...
Á sunnudögum á föstu er Jesúbíó í Neskirkju. Þann 19. mars verður kvikmyndin Jesus Christ Superstar (Norman Jewison: 1973) sýnd. Gunnlaugur A. Jónsson, prófessor, mun fjalla um myndina á undan sýningunni og að henni lokinni verður boðið upp á umræður.
Mattheusarguðspjallið fra 1964 er næsta myndin í Jesúbíóröðinni í Neskirkju og verður sýnd sunnudaginn 12. mars kl. 15. Þetta verk Pasolinis er n.k. andsvar við bandarísku Jesú-myndunum, sem gerðar voru um svipað leyti.
Þetta er svart-hvít mynd, sem byggir á texta fyrsta guðspjallsins. Alþýðufólk er í helstu hlutverkum. Kristur birtist sem reiður umbótamaður sem ögrar samtímafólki sínu með krefjandi boðskap. Oddný Sen og Arnfríður Guðmundsdóttir flytja innlýsingar. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir á Jesúbíó á föstu.
Myndir frá sýningunni eru nú aðgengilegar hér á vefnum.
Kvikmyndasýning verður í Neskirkju sunnudaginn 5. mars kl. 15. Á dagskrá er Jesúmyndin Konungur konunganna frá 1927. Þetta er vissulega 'stórmynd', vitnisburður um trúarlega innlifun og metnaðarfulla kvikmyndalist þess tíma. Þetta er fyrsta myndin af sex sem sýndar verða í kirkjunni næstu sunnudaga um Jesú Krist eða kristsgervinga - Jesúbíó á föstu 2006.
Í fyrsta pistli mínum um Gautaborgarhátíðina og kvikmyndaverðlaun sænsku kirkjunnar kynnti ég stuttlega verðlaunin og hátíðina. Í framhaldi af því langar mig til að beina kastljósinu að kirkjulegum kvikmyndaverðlaunum.
Lesa pistilinn ...
Himnaríki og helvíti, Guð, þroski, trú og efi eru meðal umfjöllunarefna í myndunum sem keppa um kvikmyndaverðlaun sænsku kirkjunnar á kvikmyndahátíðarinni í Gautaborg í ár. Þeirra á meðal eru þrjár myndir eftir íslenska leikstjóra.
Lesa pistillinn ...
Árni Svanur Daníelsson flutti erindið Píslarsaga í yfirstærð (19mb, mp3-skrá) í málstofu um túlkunar píslarsögunnar í máli og myndum. Þar ræddi hann um kvikmyndina Super Size Me í ljósi píslarsögunnar og benti á hvernig áhugaverðar hliðstæður er að finna við píslarsögu Jesú Krists og kristnar hugmyndir um gildi og hlutverk krossdauðans.
Nú er hægt að hlusta á fyrirlesturinn á netinu en hann er vistaður á hljóðvarpssíðu Deus ex cinema. Einnig er hægt að gerast áskrifandi að RSS-veitu fyrir hljóðskrár Deus ex cinema.
Í málstofu um túlkun píslarsögunnar flutti Arnfríður Guðmundsdóttir erindið Ofurmennska og ofbeldi í píslarmynd Mel Gibsons (15mb, mp3-skrá). Þar skoðar hún kvikmyndina The Passion of the Christ (Mel Gibson: 2004) og ræðir um þá mynd sem þar er dregin upp af Kristi og um túlkun Gibson á þjáningu og dauða Krists í sögulegu og guðfræðilegu samhengi.
Nú er hægt að hlusta á fyrirlesturinn á netinu en hann er vistaður á hljóðvarpssíðu Deus ex cinema. Einnig er hægt að gerast áskrifandi að RSS-veitu fyrir hljóðskrár Deus ex cinema.
Hugvísindaþing verður haldið föstudaginn 18. nóvember. Í einni málstofunni, Píslarsagan: túlkun í máli og myndum, verða fluttir fyrirlestrar þar sem komið verður inn á píslarsögur í kvikmyndum. Tveir meðlimir í Deus ex cinema hópnum, Arnfríður Guðmundsdóttir og Árni Svanur Daníelsson, munu ræða um píslarsögurnar í kvikmyndunum The Passion of the Christ og Super Size Me. Málstofan verður haldin í stofu 111 í Aðalbyggingu Háskóla Íslands og hefst kl. 8:30. Aðgangur er ókeypis.