Í þágu friðar og menntunar: Um kvikmyndir Samiru Makhmalbaf

Samira Makhmalbaf er 25 ára írönsk kona sem hefur þegar leikstýrt þremur kvikmyndum í fullri lengd í heimalandi sínu, þá fyrstu aðeins 18 ára gömul. Myndir Samiru, sem hlotið hafa fjölda verðlauna, endurspegla lífssýn ungrar konu sem gagnrýnir menningu, lærdóma og hugsanagang sem fjötrar og kúgar fólk og samfélög en það gerir hún ávallt í þágu friðar, menntunar og lýðræðis.

Gunnar J. Gunnarsson lektor við Kennaraháskólann fjallaði um kvikmyndagerðarkonuna í erindi sínu Í þágu friðar og menntunar: Um kvikmyndir Samiru Makhmalbaf sem hann flutti á málþingi um íranskar kvikmyndir í Háskóla Íslands en það var haldið í samvinnu Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar og Deus ex cinema. Um er að ræða 7mb mp3-skrá á hljóðvarpssíðu Deus ex cinema. Einnig er hægt að gerast áskrifandi að RSS-veitu fyrir hljóðskrár Deus ex cinema.

Bófaforinginn

Í ítölsku harðhausamyndinni Crime Boss (Alberto De Martino: 1972) segir frá launmorðingja á vegum mafíunnar sem á harma að hefna innan hennar. Í aðalhlutverkum eru Antonio Sabato og Telly Savalas.

Crime Boss

Crime Boss - kápa

Stund sakleysis og fyrirgefningar

Í kvikmyndinni Stund sakleysis glímir íranski kvikmyndagerðarmaðurinn Mohsen Makhmalbaf við fortíð sína þegar hann 17 ára gamall var dæmdur í fangelsi fyrir að hafa slasað lögreglumann lífshættulega með hnífsstungum á tímum keisarastjórnarinnar.

Árni Svanur Daníelsson guðfræðingur fjallar um glímu Makhmalbafs í erindi sínu, Stund sakleysis og fyrirgefningar, sem hann flutti á málþingi um íranskar kvikmyndir í Háskóla Íslands en það var haldið í samvinnu Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar og Deus ex cinema. Um er að ræða 4.6mb mp3-skrá á hljóðvarpssíðu Deus ex cinema. Einnig er hægt að gerast áskrifandi að RSS-veitu fyrir hljóðskrár Deus ex cinema.

Sib

Keimur af kirsjuberjum eftir Abbas Kiarostami

Þessi áhrifamikla íranska kvikmynd hlaut Gullpálmann í Cannes árið 1997 en hún segir frá velstæðum bílstjóra í sjálfsvígshugleiðingum sem reynir að finna einhvern til að grafa lík sitt.

Teitur Atlason guðfræðinemi fjallaði um kvikmyndina á málþingi um íranskar kvikmyndir í Háskóla Íslands sem haldið var í samvinnu Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar og Deus ex cinema en það ber yfirskriftina Keimur af kirsuberjum eftir Abbas Kiarostami. Um er að ræða 3.6mb mp3-skrá á hljóðvarpssíðu Deus ex cinema. Einnig er hægt að gerast áskrifandi að RSS-veitu fyrir hljóðskrár Deus ex cinema.

Undir olífutrjánum eftir Abbas Kiarostami

Samspil raunveruleikans og hins skáldaða er einatt margslungið og áhugavert í kvikmyndum Abbas Kiarostamis. Í kvikmyndinni Undir olíuviðnum
frá 1994 er að finna atriði sem er að mörgu leyti dæmigert fyrir vangaveltur leikstjórans um mörkin á milli þessara vídda.

Halldór Hauksson útvarpsmaður rýndi í þetta atriði í erindinu Undir olífutrjánum eftir Abbas Kiarostami sem hann flutti á málþingi um íranskar kvikmyndir í Háskóla Íslands en það var haldið í samvinnu Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar og Deus ex cinema. Um er að ræða 3.9mb mp3-skrá á hljóðvarpssíðu Deus ex cinema. Einnig er hægt að gerast áskrifandi að RSS-veitu fyrir hljóðskrár Deus ex cinema.

Hið mennska í írönskum kvikmyndum

Í tilefni af komu íranska kvikmyndagerðarmannsins Abbas Kiarostamis til Íslands á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðina sem nú er nýlokið var haldið málþing þann 6. október í Háskóla Íslands um íranskar kvikmyndir. Fyrsta erindið, Hið mennska í írönskum kvikmyndum, flutti Bjarni Randver Sigurvinsson guðfræðingur og hefur það nú verið gert aðgengilegt í hljóðvarpi Deus ex cinema. Um er að ræða 4.5mb mp3-skrá. Einnig er hægt að gerast áskrifandi að RSS-veitu fyrir hljóðskrár Deus ex cinema.

Spennandi dagskrá um norrænar kvikmyndir

Tíu kvikmyndir frá Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð, voru tilnefndar til hinna nýju Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs 2005 og nú hefur verið tilkynnt að danska myndin Drabet bar sigur úr býtum. Verðlaunin verða afhent í tengslum við þing Norðurlandaráðs á Íslandi miðvikudaginn 26. október. Í tilefni af hinum nýju verðlaunum verða tilnefndu kvikmyndirnar sýndar í Háskólabíó dagana 17. – 22. október næstkomandi.

My Summer of Love

Syndicate content