Kvikmyndir

The Smuggler

Leikstjórn: Lucio Fulci
Handrit: Lucio Fulci, Gianni De Chiara, Giorgio Mariuzzo og Ettore Sanzó
Leikarar: Fabio Testi, Marcel Bozzuffi, Ivana Monti, Guido Alberti, Ferdinando Murolo, Enrico Maisto, Daniele Dublino, Giulio Farnese, Ofelia Meyer, Nello Pazzafini, Giordano Falzoni og Lucio Fulci
Upprunaland: Ítalía
Ár: 1980
Hlutföll: www.imdb.com/Details?0081081
Einkunn: 2

Ágrip af söguþræði:
Di Angelo fjölskyldan smyglar aðeins áfengi og sígarettum en lítur ekki við sterkari fíkniefnum. Þegar Mickey Di Angelo, höfuð fjölskyldunnar, er síðan myrtur í launsátri, heitir Luca bróðir hans því að hefna dauða hans og segir helsta keppinautnum stríð á hendur. Morðingjarnir reynast hins vegar nákomnari honum en hann hélt í fyrstu.

Almennt um myndina:
Einstaklega hrottafengin ítölsk glæpamynd sem fer verulega yfir strikið í helstu ofbeldisatriðunum enda leikstjórinn enginn annar er splatterhausinn Lucio Fulci. Allir viðkvæmir ættu því að hafa vit á því að forðast þessa mynd eins og heitan eldinn.

Kvikmyndir Fulcis voru reyndar afskaplega misjafnar að gæðum og átti hann það öðru hverju til að senda frá sér alveg ótrúlegt rusl. The Smuggler er t.d. í besta falli miðlungsmynd, en hún líður mikið fyrir hörmulega enska talsetningu. Leikarinn Fabio Testi er þó alltaf traustur og er sérstaklega gaman að sjá Marcel Buzoffi í hlutverki eins aðalskúrksins, en hann lék meðal annars leigumorðingjann í The French Connection sem William Friedkin gerði árið 1971.

Greining á trúar- og siðferðisstefjum:
Helstu trúarstefin varða kirkjulegar athafnir, sem mafíuforingjarnir taka þátt í, en þar er einkum um að ræða útför og altarisgöngu þar sem einn þeirra er myrtur.

Beinar tilvísanir í texta trúarrits: Mt 28:19
Guðfræðistef: paradís, altarissakramentið, líkami Krists
Siðfræðistef: manndráp, ofbeldi, pyntingar, kvalalosti, nauðgun, hefnd, skilnaður
Trúarbrögð: rómversk-kaþólska kirkjan
Trúarlegir og goðsögulegir staðir: kirkja
Trúarleg tákn: obláta
Trúarlegt atferli og siðir: útför, signing, altarisganga