Month: nóvember 2001

Woman on Top

Leikstjórn: Fina Torres Handrit: Vera Blasi Leikarar: Penelope Cruz, Murilo Benício, Harold Perrinaeu jr., Mark Feuerstein Upprunaland: Venesúela Ár: 2000 Lengd: 92mín. Hlutföll: us.imdb.com/Title?0206420 Einkunn: 3 Ágrip af söguþræði: Isabella Oliveira er ung og hæfileikarík kona. Hún er meistarakokkur og er gift manni sem kann ekki fyllilega að meta hana – þau eru þó afar ástfanginn. Þegar hann heldur framhjá henni fer hún frá honum og heldur til San Fransisco þar sem hún dvelur hjá vini, klæðskiptingnum Moniku.Eldamennska hennar hefur mögnuð áhrif á fólk og fljótlega er orðin stjórnandi eigin sjónvarpsþáttarPassion Food Live og nýtur mikillar velgengni. En sönn ást lætur ekki svo glatt undan og eiginmaðurinn Toninho er síður en svo tilbúinn að gefast upp. Greining á trúar- og siðferðisstefjum: Gegnumgangandi í myndinni er skírskotun til átrúnaðar á hafgyðjuna Yemanja. Hún mun tilheyra Candombl átrúnaði (sem er útgáfa af Santeria trúarbrögðunum). Í myndinni fáum við innsýn í þessi trúarbrögð og ýmsar trúarathafnir, m.a. fórnir og bænir.Í upphafi myndarinnar segir frá því að Yemanja hafi blessað Isabellu með hæfileikum til að elda mat til að …