Month: desember 2001

Amélie

Leikstjórn: Jean-Pierre Jeunet Handrit: Guillaume Laurant, byggt á sögu eftir Guillaume Laurant og Jean-Pierre Jeunet Leikarar: Audrey Tautou, Mathieu Kassovitz, Rufus, Yolande Moreau, Artus de Penguern, Urbain Cancelier, Maurice Bénichou og Dominique Pinon Upprunaland: Frakkland og Þýskaland Ár: 2001 Lengd: 120mín. Hlutföll: us.imdb.com/Details?0211915 Einkunn: 4 Ágrip af söguþræði: Þegar Amélie ákveður að hjálpa öllum minni máttar sem verða á vegi hennar og refsa hinum vondu, gleymir hún sínu eigin lífi. Almennt um myndina: Kvikmyndin Le fabuleux destin d’Amélie Poulain eftir snillinginn Jean-Pierre Jeunet (Delicatessen og Börn hinnar týndu borgar) er í alla staði stórkostleg: Frábær kvikmyndataka, heillandi leikur, bráðfyndið handrit og frumlegar tæknibrellur. Le fabuleux destin d’Amélie Poulain er einfaldlega ein besta kvikmynd síðustu ára og án efa ein besta gamanmynd allra tíma. Amélie er stórkostleg kvikmynd og ein af þrem bestu myndum þessa árs. Hinar tvær eru Moulin Rouge og The Lord of the Rings: Fellowship of the Ring. Ekki missa af þessu meistaraverki! Greining á trúar- og siðferðisstefjum: Enda þótt nokkuð sé um trúar- og biblíuvísanir í myndinni þá gegna þær ekki veigamiklu …