Texas, Adios
Leikstjórn: Ferdinando Baldi Handrit: Ferdinando Baldi og Franco Rossetti Leikarar: Franco Nero, José Suárez, Hugo Blanco, Luigi Pistilli, Livio Lorenzon, Alberto Dell’Acqua [undir nafninu Cole Kitosch], Antonella Murgia, Elisa Montés, José Guardiola, Ivan Scratuglia og Remo De Angelis Upprunaland: Ítalía og Spánn Ár: 1966 Hlutföll: www.imdb.com/Details?0060143 Einkunn: 2 Ágrip af söguþræði: Burt Sullivan er lögreglustjóri í Texas, sem ákveður að halda til Mexíkó til að hafa uppi á gömlum morðingja föður síns og draga hann fyrir dómstóla. Yngri bróðir hans heimtar að fá að fara með og eltir hann alla leiðina, en þegar þeir loks finna manninn, reynist hann ríkur landeigandi, sem drottnar yfir kotbændunum með harðri hendi. Málið vandast hins vegar þegar í ljós kemur að morðinginn er faðir yngri bróðurins. Almennt um myndina: Miðlungs spaghettí-vestri með verulega slæmri enskri talsetningu. Kvikmyndataka Enzos Barboni er samt nokkuð fín en hann átti síðar eftir að slá í gegn með Trinity myndunum sínum. Franco Nero er auk þess nokkuð flottur í aðalhlutverkinu og raunar Luigi Pistilli líka sem mexíkanskur lögfræðingur, sem reynir að fá hann í …